50 ára afmæli Þyts
- Jun 16, 2025
- 1 min read
Þytur 50 ára 19.apríl 2025
Á Sunnudaginn héldum við upp á hálfrar aldar afmæli Siglingaklúbbsins Þyts með félagsmönnum og velunnurum klúbbsins og viljum þakka öllum gestum okkar fyrir komuna bæði þeim sem komu landleiðina en einkum þeim sem tóku sjóleiðina .
Einstaklega skemmtilegt að var að fá að heyra sögu klúbbsins frá Pétri Theódóri Péturssyni sem einnig var heiðraður við þetta tilefni.
Hafnarfjarðarbær átti einnig fjölmarga fulltrúa í veislunni og viljum við færa Valdimar Víðissyni bæjarstjóra þakkir fyrir hans erindi á þessum tímamótum klúbbsins. Þytur býr vel að stuðningnum og velvildinni sem hann hefur hlotið í gegnum tíðina, sem og nú frá frábæra bænum okkar.









Comments