Skráning á sumarnámskeið 2026 hefst
- May 2
- 1 min read
Nú er hægt að skrá börn á aldrinum 10 og eldri (2016 og fyrr) á sumarnámskeið Þyts.
Markmiðið er að gefa ungmennum tækifæri til að kynnast sjónum og hvernig við umgöngumst hann á öruggan hátt. Markmiðið er einnig að kynna íþróttina siglingar fyrir þátttakendum.
Þátttakendum er kennt að bregðast við síbreytilegum aðstæðum á sjó, siglinga á kayak og seglbátum, fylgja öryggis- og siglingareglum og umgengni um báta og búnað þeirra. Í lok námskeiðs gerum við okkur dagamun, hoppum i sjóinn, buslum og endum á grillveislu.
Hvert námskeið er ein vika hálfan daginn frá kl. 9:00 – 12:00 eða frá kl. 13:00 – 16:00. Kennt er í aðstöðu Þyts, Strandgötu 88 og við Hafnarfjarðarhöfn.
Námskeiðsgjaldið er 18.500kr nema vikuna 15. til 19. júní 14.800kr.






Comments