top of page

Sumardagskrá 2026

Reynt er að halda eftirfarandi dagskrá en fylgjast þarf með tilynningum á Facebook síðum klúbbsins. 

Námskeið eru flesta daga vikunnar yfir sumarið og því alltaf eitthvað líf í húsinu og hægt að koma við og skoða starfsemina og hitta þjálfara og íþróttastjóra.

Fyrir þá sem vilja kynna sér starfsemina er tilvalið að mæta á opið hús sem haldið er tvisvar í viku. Þá er hægt að fá að prófa kayaka eða bara fara á árabát. Siglingar á kjölbátum eru tilkynntar á Facebook síðu klúbbsins og komast oftast færri að en vilja.

Dagskrá getur tekið breytingum eftir veðri og vindum.

Mánudaga

16:30–19:30 Kænuæfingar fyrir 10 til 18 ára

18:00–22:00 Kænuæfingar fyrir 18 ára og eldri

 

Þriðjudaga

18:00–22:00 Secret 26 siglingar, fræðslukvöld, vinnukvöld

 

Miðvikudaga

16:30–19:30 Kænuæfingar fyrir 10 til 18 ára

Fimmtudaga – Opið hús

17:00–20:00 Secret 26 siglingar

17:00–20:00 Kænur, árabátar, kajakar og SUP bretti

 

Föstudaga

16:30–19:30 Kænuæfingar fyrir 10 til 18 ára

 

Laugardaga – Opið hús

10:00–13:00 Secret 26 siglingar

10:00–13:00 Kænur, árabátar, kajakar og SUP bretti

 

Sunnudaga

16:30–19:30 Kænuæfingar fyrir 10 til 18 ára

Siglingar á secret eru ekki hafnar og verða tilkynntar sérstaklega

Fyrsta máudagskvöld í hverjum mánuði er kaffi fyrir eldri og reynslumestu félaga klúbbsins og alla hina sem vilja hitta þá. Sjá hér.

bottom of page