top of page

Siglinganámskeið 2026 fyrir 10-16 ára

Siglingaklúbburinn Þytur býður upp á siglinganámskeið fyrir börn og unglinga 10 ára og eldri, fædd 2016 og fyrr. Markmiðið er að gefa ungmennum tækifæri til að kynnast sjónum og hvernig við umgöngumst hann á öruggan hátt. Markmiðið er einnig að kynna íþróttina siglingar fyrir þátttakendum.

​

Þátttakendum er kennt að bregðast við síbreytilegum aðstæðum á sjó, siglinga á kayak og seglbátum, fylgja öryggis- og siglingareglum og umgengni um báta og búnað þeirra. Í lok námskeiðs gerum við okkur dagamun, hoppum i sjóinn, buslum og endum á grillveislu.

​

Hvert námskeið er ein vika hálfan daginn frá kl. 9:00 – 12:00 eða frá kl. 13:00 – 16:00. Kennt er í aðstöðu Þyts, Strandgötu 88 og við Hafnarfjarðarhöfn.

​

Námskeiðsgjaldið er 18.500kr nema vikuna 15. til 19. júní 14.800kr

DSC_0209 (1).jpg
bottom of page