top of page

Kænusiglingar

Klúbburinn á kænur af ýmsum tegundum.

Hvetjum fólk til að skrá sig á Facebook síðu kænudeildar til að fylgjast með því sem er að gerast hverju sinni.

​​

RS Ventura

Er fjölhæfur, stöðugur og rúmgóður fjölskyldu- og skólabátur, hannaður fyrir allt að sex manns. Hann er kjörinn fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna vegna góðs jafnvægis og auðveldrar stýringar.

Ventura býður upp á sveigjanleika við notkun; hægt er að sigla honum með stórsegli og fokku, en einnig bæta við asýmmetrískum gennaker fyrir meiri hraða og spennu. 

Optimist kænur

Optimist er eins manns kæna hugsuð fyrir börn upp að 15 ára aldri. Optimist er ein af vinsælustu kænunum í dag og eru yfir 150 þúsund bátar skráðir í heiminum, en báturinn var hannaður árið 1947. 

Upphaflega var báturinn smíðaður úr krossvið en í dag er algengast að báturinn sé smíðaður úr trefjarplasti. 

Báturinn er 2,3m að lengd og vegur um 35kg og er með fellikjöl og eitt segl.

Laser kænur

Laser er líkt og Optimist ein af vinsælustu kænunum í dag með yfir 200 þúsund báta skráða í heiminum.

 

Laser er hugsaður sem framhaldsbátur frá Optimist þegar 15 ára aldri er náð og sömuleiðis fyrir eldri siglara sem vilja sigla á kænum. 

Báturinn er 4.23m að lengd og vegur um 58kg og er með fellikjöl og eitt segl. 

Hægt er að velja um þrjár mismunandi segla stærðir fyrir Laser, þ.e Standard (7,06 fm2), Radial (5,76 fm2) og 4.7 (4,7 fm2).

Wayfarer kænur

Klúbburinn hefur lengi notast við Wayfarer og báta af þeirri gerð sem eru mjög eftirsóttir.

Báturinn er tilvalinn fyrir fjölskyldur sem vilja sigla saman enda er báturinn tiltölulega auðveldur í notkun og vel rúmgóður. Hægt er að hafa 3 segl á bátnum allt eftir getu einstaklinga. 

Báturinn er 4.83m að lengd og vegur um 169kg.

IMG-20240621-WA0001

IMG-20240621-WA0001

FB_IMG_1726429647973

FB_IMG_1726429647973

20240520_203204

20240520_203204

20240815_191411

20240815_191411

012

012

001 (2)

001 (2)

085 (2)

085 (2)

116

116

017 (3)

017 (3)

_DSC4588

_DSC4588

007

007

bottom of page