top of page

Kjölbátastarfið

Þytur á tvo 8m langa Secret 26 kjölbáta. Þessir bátar voru smíðaðir hér á landi kringum 1994 og eru til nokkrir eins bátar hjá siglingafélögunum Brokey og Ými. Bátarnir voru hannaðir af David Thomas sem hannaði nokkra þekkta kjölbáta.

 

Sjá meira um Secret bátana og David Thomas hér á Wikipedia: https://is.wikipedia.org/wiki/Secret_26 

 

Þessir bátar eru mjög kvikir og líflegir, þeir geta krafist mikils af áhöfninni en eru mjög góðir bátar til að kenna rétt handtök því gott pláss er fyrir áhöfn.

 

Til þess að taka þátt í siglingum klúbbsins er best að byrja á að því fara inn á facebook síðu kjölbátadeildar þar sem allir eru velkomnir og fylgjast með því þegar opin sigling er auglýst. Einnig eru haldin opin hús þar sem oft er siglt á kjölbátum og það einnig auglýst á Facebook síðunni.

Opnar siglingar eru haldnar reglulega að sumarlagi. Við bjóðum alla velkomna að koma í prufusiglingu á kjölbátunum en vonumst auðvitað til þess að þeir sem vilja sigla áfram muni skrá sig í klúbbinn. Eftirspurn eftir plássi er þó nokkur og er látið gilda að fyrstur kemur fyrstur fær. Miðað er við að um borð séu 4-5 manns. Þar af allavega tveir sem eru vanir. Tíðni siglinga fer eftir veðri en einnig því hvernig gengur að manna skipstjórastöðuna en manneskju með skipstjórnarréttindi / skemmtbátaskírteini þarf til að stjórna bátnum.

 

Koma þarf vel klæddur en hægt er að fá lánuð öryggisvesti.

 

Stefnt er að því að halda byrjendanámskeiðið “hæfur háseti” á hverju sumri. Námskeiðið er grunnnámskeið í siglingu kjölbáta og góður grunnur að því að taka verklegt skemmtibátapróf. Til að fá að vera skipstjóri á kjölbátum klúbbsins þarf skemmtibátaréttindi. Siglingar á bátunum og þáttaka í opnum siglingum er góður grunnur að því að öðlast færni, reynslu og sjálfstraust til að verða skipstjóri hvort sem er á eigin bát eða bátum klúbbsins. ​

Þytur hefur frá 1994 tekið þátt í mörgum keppnum og mótum á kjölbátum og eignast íslandsmeistara oftar en einu sinni. Lægð hefur verið í kappsiglingum undanfarin ár hjá klúbbnum en vilji er til að blása nýji lífi í þann hluta siglinganna. Fylgist með facebook síðum eða hafið samband til að bjóða ykkur fram. 

bottom of page