top of page

Kayakstarfið
Kayakstarfið hefur verið mjög lifandi síðustu ár hjá klúbbnum.
Hvetum öll til að kíkja á Facebook síðu kaykdeildar til að fylgjast með því sem er að gerast hverju sinni.
Starfið snýst aðallega um eftirfarandi.
Félagaróður
Auglýstar eru reglulega ferðir sem vön manneskja fer fyrir. Er róið út fyrir Hafnarfjörð. Einnig kemur fyrir að kayakar séu ferjaðir lengra á bílum til að stunda róður á nýjum slóðum.
Klúbburinn á nokkur SUP bretti sem er hægt að fá að prófa.
Opin hús.
Klúbburinn á nokkuð af einföldum bátum af nokkrum tegundum sem hægt er að fá að prófa á opnum húsum þegar veður er gott. Möguleiki er að fá leigða galla hjá klúbbnum gegn greiðslu.
Klúbburinn er með geymslupláss fyrir kayaka en það er mjög takmarkað og er biðlisti að komast að.
Hafa þarf samband við formann kayakdeildar eða stjórn klúbbsins til að kanna með pláss.
Nýlega tók til starfa kappróðaradeild en starfið þar er í mótun. Fyrsta á dagskrá var að æfa fyrir kappróður á sjómannadaginn 2026 í samstarfi við kappróðafélagið Stefnir.
![]() 20210623_225516 | ![]() 20210811_175635 | ![]() 20220418_121834 |
|---|---|---|
![]() DSC_0203 | ![]() 20211020_181347 | ![]() 20220629_190842 |
![]() 20240213_182126 | ![]() IMG-20210218-WA0017 | ![]() 20240425_102410 |
![]() IMG-20220630-WA0004 | ![]() IMG-20220426-WA0025 | ![]() DSC_0029 (1) |
bottom of page












