top of page
This service is not available, please contact for more information.

Kjölbátanámskeið

Lærðu að sigla kjölbát

80 íslenskar krónur
Location 1

Service Description

Stefnt að því að halda kjölbátanámskeið hjá Þyt í sumar. Um er að ræða tvö námskeið sem haldin eru samtímis. Annars vegar er það námskeiðið „Hæfur háseti“ þar sem á sex dögum er farið í allt sem þarf að kunna og æfa til að vera liðtækur áhafnarmeðlimur um borð í Secret26 kjölbátum Þyts. Hitt námskeiðið er sex daga "skipstjóranámskeið" sem miðar að því að undirbúa þáttakendur fyrir verklegt skemmtibátapróf sem hægt er að taka í framhaldinu á Secret26 báta Þyts. Þátttakendur geta verið fjórir til fimm í einu og er stefnt að því að siglt sé annan hvern dag en það er sveigjanlegt. Þáttökugjald fyrir Hæfan háseta er 45.000.- en 60.000.- fyrir skipstjóranámskeiðið. Námskeiðið er í heild 28 tímar. Siglt er frá 18 til 22 á virkum dögum en gert er ráð fyrir einni 8 tíma siglingu um helgi þar sem skipulögð og sigld er lengri leið. Gert er ráð fyrir að námskeiðið sé því 6 skipti. Stefnt er að námskeiðinu í júní, nákvæmar dagsetningar ákveðnar síðar eftir fjölda þátttakenda. Frekari upplýsingar fást hjá leiðbeinanda Markúsi E. Péturssyni í póstfangið Markús.Elvar@gmail.com eða í 841-0457.


Upcoming Sessions


Contact Details

  • Hafnarfjörður, Iceland


bottom of page