
SAGA ÞYTS

Siglingaklúbburinn Þytur var stofnaður þann 19. apríl 1975 af nokkrum Hafnfirskum áhugamönnum um siglingar. Aðdragandinn að stofnun klúbbsins var, að árið 1971 hafði sjóskátaklúbbur á vegum Skátafélagsins Hraunbúa tekið til starfa, auk þess sem æskulýðsráð Hafnarfjarðar hleypti af stokkunum siglingaklúbbi fyrir unglinga á sama tíma. Störfuðu þessir klúbbar áfram og urðu síðan uppistaðan í Siglingaklúbbnum Þyt, sem er alhliða siglingaklúbbur fyrir alla aldurshópa.
Fyrsta sumarið fór starfsemin fram í Hafnafjarðarhöfn, við slæmar aðstæður, en að ósk bæjaryfirvalda í Hafnarfirði og Garðabæ var síðan komið upp sameiginlegri aðstöðu fyrir Þyt og Siglingaklúbbinn Vog í Garðabæ, í Arnarvogi.
Fyrstu árin snérist starfsemin að mestu um framkvæmdir í Arnarvogi og lögðu klúbbfélagar fram mikla vinnu við bátasmíðar og viðgerðir á bátum. Þau sumur sem klúbburinn starfaði í Arnarvogi var haldið uppi öflugu barnastarfi bæði fyrir félagsmenn og æskulýðshópa frá vinnuskólum og íþróttanámskeiðum bæjanna. Einnig var efnt til siglingasýninga og tóku klúbbfélagar einnig þátt í ýmsum mótum.
Árið 1979 hafði dofnað mjög yfir áhuga Hafnfirðinga á að stunda siglingar á Arnarvogi og samþykkti stjórn Þyts þá um haustið að segja upp samstarfssamningnum við Vog og óska eftir að eignum klúbbanna yrði skipt. Eftir að eignaskiptin höfðu farið fram vorið 1980 flutti Þytur starfsemi sína til Hafnarfjarðar, í hús hafnarstjórnar við Óseyrarbraut, þar sem reist var 480 fermetra girðing við sjóinn og hófst starfsemin þar í júní 1980. Mikið líf færðist nú í starfsemi klúbbsins og fjölgaði félagsmönnum til muna. Þarna starfaði klúbburinn svo næstu árin þar til hann varð að víkja vegna hafnarframkvæmda, en fékk enga aðstöðu í staðinn. Aðstöðuleysið var aljört í nokkur ár og reyndu félagar eftir megni að nýta sér erfiðar aðstæður í smábátahöfninni til siglinga.
Á 20 ára afmæli félagsins árið 1995 fékk félagið vilyrði frá bæjaryfirvöldum um lóð sunnan Drapnarslippinn og hófust framkvæmdir þar vorið 1998. Þar var byggt um 350 fermetra húsnæði, sem er bæði bátaskýli og félagsaðstaða, auk þess sem gert er ráð fyrir bryggju og uppsátri í höfninni í tengslum við húsnæðið. Húsið var tekið í notkun árið 1999, Rekstur húsnæðis er í höndum Þyts, með rekstrarsamning við Hafnarfjarðarbæ.
Formenn klúbbsins frá upphafi:
1975-1982 Pétur Th. Pétursson
1983-1986 Baldvin Einarsson
1986-1994 Ármann Jóhannesson
1995-2002 Egill Kolbeinsson
2003 Friðrik Friðriksson
2004 Hákon Helgason hálft ár / Ragnar Hilmarsson hálft ár
2005 Helgi Ívarsson ?
2005-2009 Ragnar Hilmarsson
2010-2012 Gunnar Geir Halldórsson
2013-2015 Ragnar Hilmarsson
2016-2017 Pétur Th. Pétursson / Gunnar Freyr Gunnarsson frá sept. 2017
2018-2019 Gunnar Geir Halldórsson
2020- 2024 Markús Pétursson
2025 Helga Veronica Foldar
Elstu myndir úr safni klúbbsins









Safn af gömlum fréttaumfjöllunum um klúbbinn, smellið á myndirnar fyrir stærri útgáfu
![]() 2015-Thytur Islandsmeistari | ![]() 1997-Samið um húsnæðið_2 |
|---|---|
![]() 1975-Timinn-Aðstaða Þyts_cr | ![]() 1975-Stofnun Þyts_cr |
![]() 1975-timinn_cr | ![]() 1977-Dagblaðið |
![]() 1980-Fjardarfrettir_cr | ![]() 1992-Fjardarposturinn |
![]() 1978-Alþyðublaðið_cr | ![]() 1997-Samið um húsnæðið |
![]() 1983-DV 2_cr | ![]() 2015-GunnarGeir |
![]() 1999-Húsið vígt |
Í tilefni af 50 ára afmæli klúbbsins ákváðum við að uppfæra merki klúbbsins lítilsháttar. Við viljum þó gjarnan geyma gamla merkið á vísum stað enda hefur það verið með okkur lengi.














